Leita

Heimsending samdægurs ef pantað er fyrir kl. 12

Eyrnalokkar - Flétta, brons

Eyrnalokkar frá Orrifinn – brons hringir úr skartgripalínunni Flétta. 

Fléttan hefur fylgt manninum frá örófi alda og hjá mörgum þjóðflokkum hefur hún þjónað þeim tilgangi að upplýsa um ættir, hjúskaparstöðu og samfélagsstöðu þess fléttaða. Sumir þjóðflokkar hlaða fléttuna merkingu, hjá norður-amerískum indíánum táknar fléttan t.d. sameiningu og eru lokkarnir þrír hugsaðir sem fortíð, nútíð og framtíð. Börn flétta gjarnan vinabönd og er fléttan þar táknmynd vináttu og gjafmildi. Hárlokkur eða flétta eru gjarnan geymd til minningar um barnæsku eða fyrstu ástina.

Fléttan stendur fyrir sameiningu, hún varðveitir minningar um kærleikann og er tákn ástarinnar.