Leita

Heimsending samdægurs ef pantað er fyrir kl. 12

Heimsending samdægurs ef pantað er fyrir kl. 12

SKILMÁLAR

Skilmálar Grettisgötu slf.

Fyrirtækið Grettisgata slf á og rekur Akkúrat. Símanúmer verslunar er 8696964 og vefsíða akkurat@akkurat.store. Lögheimili fyrirtækisins er Þrastarlundur 12. 210 Garðabæ.

Akkúrat áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

 

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun nema ef pöntun berst fyrir kl 12 þá er hún send samdægurs. Sé varan ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af sending.is gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar þeirra um afhendingu vörunnar. Sjá hér: https://sending.is/sida/skilmalar/ Akkúrat ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Akkúrat til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Frí heimsending er á pöntunum 15.000 kr og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru.

 

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með okkar eigin útkeyrsluteymi eða sending.is beint heim að dyrum. Sendingakostnaður er kr. 990. Ef að verslað er fyrir 15.000,- eða meira þá fellur sendingarkostnaðurinn niður. 

 

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Akkúrat endurgreiðir vörur sem skilaðar eru að fullu. 

 

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn eða endurgreiðsla. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

 

Greiðslur

Við bjóðum uppá fjölbreytta greiðslumöguleika. Kreditkort, debetkort, Síminn Pey og Pei.

 

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Privacy policyAll personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

 

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness (Governing law / JurisdictionThese Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.