Leita

Væntanlegt

PIZZABOX #2 - KEMUR MIÐJAN OKT

PIZZABOX #2 ER AKKÚRAT FYRIR...

....alla sem elska pizzu. Eru það ekki allir? Frábær tækifærisgjöf, innflutningsgjöf eða "af því bara" gjöf. Inniheldur nokkra nauðsynlega hluti til að búa til hina fullkomnu pizzu. Pizzaskærin eru ótrúlega sniðug og nytsamleg. Stór krukka af tómatbasil sósu sem er fullkomin á pizzuna, lífrænt oregano krydd beint frá Sikiley, Parmesan&Basil krydd til að toppa og svo Chilli olía fyrir þá sem vilja hafa pizzuna smá spicy. Fullkomið box fyrir sælkerann. 

BOXIÐ INNIHELDUR:

- Pizzaskæri frá Gentleman´s Hardware

- Lífræna Tómatbasil sósu 500 ml. sem er frábær á pizzuna frá Alce Nero

- Chilli Olíu frá La Tourangelle

- Lífrænt Origano krydd frá Valdibella  

- Parmesan&Basil salt frá Nicholas Vahé

 SMÁATRIÐIN

Gjöfin kemur snyrtilega pökkuð inn í silkipappír og svart gjafabox.

Algengar spurningar

Við sendum pantanir út samdægurs eða daginn eftir pöntun!

Gjöfunum er snyrtilega pakkað í pappír ofan í gjafaboxinu. Það er extra skemmtilegt að opna gjafirnar frá okkur :)

Gjafaboxin okkar koma öll pökkuð inn en ef þú ætlar að velja sjálf vörur og vilt láta pakka þeim í gjafabox þá getur þú hannað þitt eigið gjafabox!

Það er ekkert mál. Þú einfaldlega skrifar inn upplýsingar viðtakanda þegar þú skrifar inn heimilisfangið í körfunni.

Ef þú ert að kaupa fleiri en 10 gjafabox endilega hafðu samband beint við okkur og við förum saman yfir óskir ykkar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar um fyrirtækjapantanir á fyrirtækjasíðunni okkar.