Leita

Heimsending samdægurs ef pantað er fyrir kl. 12

Panna á viðarplatta 27 cm

Ótrúlega skemmtileg steypujárnspanna sem hentar vel undir tapas rétti, osta og grænmeti. Pannan hitnar jafnt og gerir eldunina jafnari. Viðarplatti fylgir með pönnunni og kemur hún í fallri gjafaöskju.

Stærð 27 cm. Pannan má ekki fara í uppþvottavél.

Holm vörulínan inniheldur sósur, krydd og eldhúsbúnað sem hannaður er í samvinnnu við kokkinn og sælkerann Claus Holm. Vörulínan endurspeglar ástríðu hans fyrir góðum mat og góðri upplifun í matargerð. Holm sjálfur hefur valið, prófað og samþykkt hverja einustu vöru og sérhvert smáatriði vörulínunnar. Með Holm vörunum færðu gott verkfæri til að leika þér að matnum þannig að máltíðin verði bragðgóð upplifun.