Leita

Heimsending samdægurs ef pantað er fyrir kl. 12

Gleðileg jól Ilmstrá

Gleðileg jól ilmstrá

Jólailmurinn frá URÐ fangar minningar jólanna með sannkallaðri jólaveislu fyrir lyktarskynið. Ilmurinn samanstendur af blöndu af furu, fíkjuvið, karamellu, santalvið, kanil, davana, sedrusvið, rifsberjum og patsjúlí.

Ilmstrá eru góð leið til þess að veita heimilinu góðan ilm án þess að kveikja á kerti. Svörtu stráin eru sett ofan í glasið þar sem þau draga í sig ilmolíurnar. Ferskur ilmur er fenginn með því að snúa stráunum við af og til.Ilmurinn endist í 1-2 mánuði ef öll stráin eru notuð. Ilmurinn er mildari og endist lengur ef færri strá eru notuð.

Gleðileg jól heimilisilmur er í 125 ml flösku og honum fylgja svört bambusstrá.