Leita

Heimsending samdægurs ef pantað er fyrir kl. 12

Armband – brons snáka spöng með silfur keðju

Armband frá Orrafinn Skartgripumbrons snáka spöng með silfur keðju úr skartgripalínunni Ouroboros.

 

Snákurinn hringar sig og bítur í skottið á sér, hann byrjar hvorki né endar. Þannig minnir Ouroboros okkur á eilífa hringrás lífs og dauða. Ouroboros er eitt elsta dulræna tákn heims. Nafnið er forngrískt en táknið rekur uppruna sinn til fornegypskra teikninga. Táknið finnst í mörgum menningarheimum og á sér t.d. mikilvægan sess í fræðum gullgerðarmanna þar sem það táknar einingu allra efna. Í eilífðinni eru andstæðurnar hluti af heild, ekkert hverfur heldur umbreytist, eyðing og uppbygging vega saman salt. Í skartgripum Orrifinn fjallar snákurinn um allt þetta en til viðbótar vekjum við upp gamla hefð greftrunar. Upphafsstafir þess sem þú elskar eru umluktir ouroboros snáknum, arfleifð þín grafin inní eilífðina.

Láttu Ouroboros umlykja þig og þína, læstu ást ykkar í eilífðina.

Nánar um Orrafinn Skartgripi:

https://orrifinn-jewels.myshopify.com/