Fara í meginmál
Öðruvísi gjafir
Akkúrat
Akkúrat

Orrifinn

Armband, lítil gull hjörtu og perlur

45.900 kr.
  • Hægt að sækja í verslun Akkúrat, Skeifan 9

    Pantanir eru vanalega tilbúnar innan sólarhrings

  • Sendum samdægurs eða daginn eftir. Heimsending gjaldfrjáls ef verslað er yfir 20.000 kr.

    Sendingarskilmálar

Armband frá Orrifinn Skartgripir– Silfur armband með þremur 14 kt. gull hjörtum og fjórum ferskvatns perlum úr skartgripalínunni Milagros.   Spænska orðið milagros þýðir kraftaverk. En í Mið- og Suður-Ameríku er orðið…

Lýsing
Armband frá Orrifinn Skartgripir– Silfur armband með þremur 14 kt. gull hjörtum og fjórum ferskvatns perlum úr skartgripalínunni Milagros.

 

Spænska orðið milagros þýðir kraftaverk. En í Mið- og Suður-Ameríku er orðið einnig notað yfir áheitagripi. Áheitagripir eru litlir munir sem fólk leggur á altari eða helgan stað, heitir á og biður fyrir einhverju eða einhver- jum. Áheitagripirnir eru gjarnan í formi líkamshluta eða líffæra því oft vill biðjandinn kalla eftir bata af líkamlegu eða andlegu meini. Táknið getur verið bókstaflegt en þarf ekki að vera það. Ef hjarta er til dæmis lagt á helgan stað má biðja um bata af líkamlegu hjartameini en líka um bata af ástarsorg. Milagros skartgripalínan sækir innblástur í gripina sjálfa og þennan áheitasið en leikur sér einnig með notkun mannabeina sem var til siðs að nota til skrauts í menningarheimum Inka í Perú og Maya í Mexíkó. Með þessu samspili helgisiða samtímans og fornra hefða færir Milagros þér nýjan sið sem þú átt þátt í að skapa. Fáðu áheyrn bæna þinna með Milagros

Nánar um Orrifinn


Algengar spurningar

Hvenær fæ ég pöntunina mína?

Við sendum pantanir út samdægurs eða daginn eftir pöntun!

Hvernig er gjafaboxum pakkað inn?

Gjöfunum er snyrtilega pakkað í pappír ofan í gjafaboxinu. Það er extra skemmtilegt að opna gjafirnar frá okkur :)

Get ég látið pakka vörum inn í gjafabox?

Gjafaboxin okkar koma öll pökkuð inn en ef þú ætlar að velja sjálf vörur og vilt láta pakka þeim í gjafabox þá getur þú hannað þitt eigið gjafabox!

Get ég látið senda beint á viðtakanda?

Það er ekkert mál. Þú einfaldlega skrifar inn upplýsingar viðtakanda þegar þú skrifar inn heimilisfangið í körfunni.

Fyrirtækjapantanir

Ef þú ert að kaupa fleiri en 10 gjafabox endilega hafðu samband beint við okkur og við förum saman yfir óskir ykkar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar um fyrirtækjapantanir á fyrirtækjasíðunni okkar.

Fleiri úr flokknum OrriFinn