Leita

KOKKABOXIÐ

KOKKABOXIРER AKKÚRAT FYRIR...

....alla snillinga í eldhúsinu. Frábær gjöf fyrir heimakokkinn. Þetta veglega gjafabox inniheldur japanskan hníf frá KAI. Hnífarnir eru búnir til eftir aldagömlum hefðum japanskra Samurai járnsmiða, en með háþróaðri nútíma tækni. Árangurinn er geysilega vandaðir hágæða hnífar úr Damascus stáli með fallegri áferð. Hægt að velja úr tveimur tegundum: KAI Shoso og KAI Wasabi (hægt að sérpanta fleiri tegundir). Gjafaboxið inniheldur einnig stórt og veglegt steikarbretti frá Holm, Chilli salt og Wild Garlic salt frá Nicholas Vahé og viskastykki frá íslenska hönnunarfyrirtækinu Ihanna.

 

GJAFABOXIÐ INNIHELDUR:

- Hníf fá KAI. Hægt að velja um tvær tegundir.

KAI Shoso 14,5 cm (Nánar) og Kai Wasabi 20 cm (Nánar)

- Steikarbretti frá Holm Akacie viður 50*35 cm.  (Nánar)

- Chilli salt og Wild Garlic salt frá Nicolas Vahé (Nánar)

- Viskastykki frá Ihanna (Nánar)

 

SMÁATRIÐIN

Gjöfin kemur snyrtilega pökkuð inn í silkipappír og í svart fallegt gjafabox. Brettið er bundið utan um gjafaboxið með fallegum borða.

Gjöfin er send af stað samdægurs ef pantað er fyrir kl 12 annars næsta dag (sendum aðeins virka daga).