Við sendum pantanir út samdægurs eða daginn eftir pöntun!
Öðruvísi gjafir
Lífræn Ólífuolía 500 ml.
Pèppoli DOP Chianti Classico lífræn extra virgin ólífuolía frá Antinori er framleidd á Pèppoli landareigninni í Chianti-héraði, skammt frá San Casciano Val di Pesa, í 300–350 metra hæð yfir sjávarmáli. Landareignin spannar um 100 hektara, þar af eru 27 hektarar ræktaðir undir ólífulundum. Þar vaxa meðal annars aldagömul ólífutré af afbrigðunumFrantoio, Leccino og Moraiolo.
Ólífurnar eru handtíndar og pressaðar innan 12 klukkustunda frá uppskeru til að tryggja hámarks ferskleika og gæði olíunnar. Þær eru pressaðar með hefðbundnum steinkvörnum.
Olían einkennist af framúrskarandi bragð- og ilm eiginleikum, góðri fyllingu og jafnvægi, ásamt áberandi pipar kenndu eftirbragði sem er einkennandi fyrir ólífuolíu frá Toscana.
Við sendum pantanir út samdægurs eða daginn eftir pöntun!
Gjöfunum er snyrtilega pakkað í pappír ofan í gjafaboxinu. Það er extra skemmtilegt að opna gjafirnar frá okkur :)
Gjafaboxin okkar koma öll pökkuð inn en ef þú ætlar að velja sjálf vörur og vilt láta pakka þeim í gjafabox þá getur þú hannað þitt eigið gjafabox!
Það er ekkert mál. Þú einfaldlega skrifar inn upplýsingar viðtakanda þegar þú skrifar inn heimilisfangið í körfunni.
Ef þú ert að kaupa fleiri en 10 gjafabox endilega hafðu samband beint við okkur og við förum saman yfir óskir ykkar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar um fyrirtækjapantanir á fyrirtækjasíðunni okkar.
Þessi vefsíða notar vafrakökur. Með því að halda áfram notkun síðunnar samþykkir þú notkun vafrakaka.