Einstaklega vönduð og glæsileg Leður minnisbók frá Paper Republic. 48 bls. plain minnisbók fylgir með þannig þú getur strax byrjað að nota hana! Kemur í fallegri gjafaöskju.
Minnisbókin er lífstíðareign. Leðrið verður fallegra með aldrinum og þú getur alltaf skipt um pappírsbækurnar inní henni þegar þú klárar blaðsíðurnar. Búin til úr premium ítölsku leðri og handsaumuð á vinnustofu Paper Republic í Vín.
Rúmgóð og örugg minnisbók með nóg af plássi fyrir allar hugsanir þínar, hugmyndir og skipulag. Ef þú elskar að ferðast þá er þessi bók þinn besti ferðafélagi. Settu niður á blað allar ferðasögurnar eða hugmyndirnar. Þú getur valið úr ýmsum áfyllanlegum pappírsbókum sem eru allar gerðar út hágæða mjúkum pappír sem er einstaklega þægilegt að skrifa á.
Litir: Chestnut, Cognac, Red, Petrol Blue, Venezia, Black
Stærð: 14,8 x 21 cm






















