Við erum flutt í Ármúla 42!
VÖRUR FYRIR
Heimsending samdægurs ef pantað er fyrir kl 12
FYRIR
Heimsending samdægurs ef pantað er fyrir kl. 12
Jómfrúin hefur á þeim 25 árum sem hún hefur starfað fangað hjörtu þeirra sem miðbæ Reykjavíkur sækja. Hún er fasti í tilverunni og viðskiptavinir hennar eru þeir tryggustu. Margir hafa sótt Jómfrúna frá opnun hennar og þangað kemur fólk til að fagna stóráföngum í lífinu, kemst í jólaskapið, hlustar á sumarjazz og hittir góða vini. Á boðstólum er, og hefur alltaf verið, danskt smurbrauð í bland við aðra sígilda danska rétti að ógleymdum guðaveigum til að væta kverkarnar. Hefðin er í hávegum höfð á Jómfrúnni og stefna hennar er að halda kúrsinum stöðugum á langri og farsælli leið. Hún er fjölskyldufyrirtæki sem á í fjölmörgum hvert bein.
Bókin sem hér kemur fyrir sjónir lesenda er óður til Jómfrúarinnar. Í henni má finna uppskriftir að fjölmörgum réttum sem prýtt hafa matseðilinn í gegnum tíðina, sögu veitingastaðarins og vitnisburð fastakúnna sem allir kalla Jómfrúna sína enda eru veitingastaðir hvorki stærri né meiri en fólkið sem er þar innandyra. Jómfrúin er okkar og við erum hennar.
Kom glad!
Umhverfisvæn gjafabox
Heimsending samdægurs
Nýjar gjafir reglulega
We use cookies on our website to give you the best shopping experience. By using this site, you agree to its use of cookies.