Leita

Heimsending samdægurs ef pantað er fyrir kl. 12

Ræktunarpottur Classic

Classic ræktunarpottur frá Verítable. Sjálfvirk vökvun og hæðarstillanlegt LED ljós. Classic er ræktunarpottur í fullri stærð sem hentar í öll eldhús. Á honum eru tvö hæðarstillanleg ljós svo hægt er að vera með misháar plöntur sem vaxa mishratt. Körfurnar undir plönturnar eru fjarlægjanlegar svo hægt er að víxla á þeim eftir þörfum. Með fylgja 4 Lingot fræeiningar til þess að koma þér af stað í ræktuninni (basilíka, krulluð steinselja, timían og salat).

Stingdu í samband, fylltu á vatnið, settu Lingot í og tækið sér um sig sjálft í allt að 4 vikur. Með sérhannaðri hæðarstillanlegri LED lýsingu sér tækið til þess að ljósið veiti kjörið birturóf fyrir plönturnar og líki eftir náttúrulegum sólargangi, þ.e. 16 klst. af birtu og 8 klst. af myrkri. Hlutlausa áveitukerfið sér til þess að ekki þurfi að vökva plönturnar heldur sé nóg að fylla á vatnið af og til. Lingot einingarnar fyrir Véritable ræktunarpottana innihalda alla þá næringu sem að plönturnar þurfa á að halda svo ekki þarf að huga að viðbættri næringu.

Saman myndar þetta eina heild sem sér til þess að þú getir verið með ferskar kryddjurtir eða grænmeti til taks í eldhúsinu þegar að þér hentar.